Monday, November 07, 2005

Um hvað að skrifa?

Í þessum skrifum mínum á bloggsíðunni mun ekkert verða mér óviðkomandi að skrifa um, hvort sem það heitir pólitík, viðskipti, fjölmiðlar, listir og menning, atvinnuleysi, geimferðir fyrr og nú, lestur góðra bóka, akstur utan vega, lausaganga búfjár, skrílslæti, málefni þriðja heimsins, hryðjuverkaógn, kaþólska, félagsmál, fljúgangi furðuhlutir, vélar og tækni, skósólar, mittismál antílópa, skurðgröfur og skólamál, skattpíning m.t.t. velferðarríkisins, útspil í rangri hendi, kvótasukk, spilling, brask, heilaþvottur, stöðuveitingar osfrv. osfrv.
Mun ekki liggja á liði mínu að varpa ljósi á þessi mál og hjálpa til að kryfja þau til mergjar. Mun jafnvel hoppa í hlutverk litla landsímamannsins ef svo ber undir. Markmiðið er að sjálfsögðu að láta gott af sér leiða og þ.a.l. stuðla að bættu mannlífi og þar með betri lífsgæðum.
Að lokum mun ég leitast til að vera stuttorður og forðast óþarfa málalengingar, enda eru þær aldrei...þá meina ég aldrei...til góðs, einungis til að drepa málum á dreif og draga athyglina frá aðalatriðunum.

hb

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Brotið er til mergjar...

2:33 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það er líka krufið til mergjar nafnlausi besserwisser!

Svo heimta ég að það sé hægt að setja komment við síðustu færslu. Set það bara hér. Eitt orð: GREINASKIL!!!!

1:26 PM  
Anonymous Anonymous said...

Nei það er ekki krufið til mergjar. Þetta er máltæki úr íslenskri goðafræði. Það er aðeins brotið til mergjar.

5:39 AM  
Anonymous Anonymous said...

Að brjóta eitthvað til mergjar er upprunalega orðalagið. Þjálfi tók lærlegg hafurs Þórs og braut hann til mergjar, til þess að ná í beinmerginn.

Hins vegar er það svo skv. íslenskum orðabókum og málstöð HÍ að sögnina að kryfja má nota alveg eins og sögnina að brjóta. Þrátt fyrir að nota orðið kryfja þyki síðri málnotkun en að nota orðið brjóta, þá er það alveg jafn rétt að segja kryfja.

Leiðist einstrengingslegir og illa upplýstir nafnlausir aðilar á bloggsíðum. Hver dó og skipaði þig íslenskufræðing þessarar bloggsíðu? Enginn, það er mitt hlutverk að koma með slíkar athugasemdir hér. Vertu svo úti.

10:16 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það fældi ég EINA lesandann í burtu ;(

Og líka sjálfan bloggarann, nema hann bloggi bara á 4 mánaða fresti :) Jibbí bráðum kemur júlí!

2:00 AM  

Post a Comment

<< Home