Bara í BNA
Undanfarið hefur verið þvílík gúrka í fréttum að einn þriðji væri nóg. Maður hlustar og horfir á fréttir af gömlum vana, án sérstakrar athygli. Augnlokin eru alveg í hvíldarstöðu langtímum saman.
En ein frétt í gærkvöldi fékk þau til þess að lyftast aðeins nokkra millimetra a.m.k., þegar sagt var frá réttarhöldum í Virginíu í Bandaríkjunum. Dómstóllinn úrskurðaði að Zacarias Moussaoui, félagi hryðjuverkasamtakanna al-Kaída, hefði framið glæpi sem réttlættu dauðarefsingu samkvæmt bandarískum hegningarlögum. Eins óintressant og þetta hljómar, en það sem fékk auglokin til að hreyfast var framsetning fréttarinnar...sem var á þá lund að kviðdómur hafði legið yfir þessu í fjóra daga og komst svo að þeirri niðurstöðu að hægt væri að dæma manninn til dauða (því hann hafði sagt ósatt í ágúst 2001 og þar með stuðlað að dauða tæplega 3000 manna). Kviðdómurinn lá sem sagt í nokkra daga til að finna leið til að dæma manninn til dauða. Hann hefði vitaskuld ekki verið í vandræðum að dæma hann í svona 7 ævilöng fangelsi. En eins og fréttin var matreidd var það afrek út af fyrir sig að finna dauðadóm yfir þessum meinta hryðjuverkamanni.
Ekki svo að skilja að ég hafi einhverja samúð þessum meinta hryðjuverkamanni, sem hafði allt annað í huga en að syngja í kirkjukór þarna vestur frá eða eitthvað álíka. En hann hafði í sjálfu sér ekkert á samviskunni annað en að hafa sagt ósatt. Kannski fulllangt gengið að senda hann í rafmagnsstólinn fyrir það.
En aðalástæðan fyrir þessum skrifum, er þessi upplifun mín á hvernig hugsunarhátturinn hefur þróast þarna í Amríkunni. Spurningin sem er vætal í þessu; hvernig getur maður svalað hefndarþorsta sínum? Dráp er það eina sem getur það í augum langflestra Bandaríkjamanna. Við í Evrópu erum ekki komin alveg svo langt...enn að a.m.k.
hb.

7 Comments:
Moussaoui var ákærður fyrir hlutdeild að hryðjuverkum, flugráni og eyðileggingu flugvéla, fyrir notkun á gereyðingarvopnum og morð. Fyrir fjögur af þessum fimm ákæruatriðum má dæma hann til dauða. Þannig að kviðdómurinn var ekkert að finna upp á þessu.
Ekkert annað á samviskunni en að segja ósatt? Hei, hann var handtekinn í ágúst 2001 vegna brota á innflytjendalögum og hvað var kappinn að gera? Jú jú stundaði stíft nám í flugskóla, þar sem hann átti að fljúga flugvél á Hvíta húsið. Og hann vissi um öll plönin. Svolítið önnur lygi en að segja bara að jólasveinninn sé til (vona að þarna hafi ég ekki eyðilagt jólin fyrir þér:))
Hann játaði að hafa blekkt lögguna þannig að hinir kæmust upp með ódæðið 11. sept.
Hins vegar er hann auðvitað sá eini NB sem hefur verið handtekinn vegna 11. sept., svo að auðvitað er þetta svona "pólitískt vinsæll dómur" í BNA. Sefa reiði almennings einhvern veginn.
Lagalega séð er ekkert að þessu :þ
Hins vegar má endlaust deila um réttlætingu dauðarefsinga. Rannsóknir sýna t.d. að dauðarefsing hefur ekkert meiri fælingarmátt gagnvart afbrotum en lífstíðarfangelsi.Þannig að eftir situr bara gjaldastefnan, þ.e. að fólk gjaldi fyrir brot sín í samræmi við eðli afbrots, svona auga fyrit auga búllsjitt.
Svo tíðkast dauðarefsingar í miklu fleiri löndum en BNA, t.d. Kína og Saudi-Arabíu.
Nú hafa SÞ (ekki ég þó) og Amnesty barist fyrir afnámi dauðarefsinga lengi. Það sem er kannski mest skerí er vaxandi fylgi við þessa tegund refsinga í BNA.
Spáðu svo í það að það var bara árið 1928 sem dauðarefsing var afnumin úr lögum á Íslandi!
----assssakið röflið, skal fá mér mitt eigið blogg :)
Fyndið, þú skrifar pistil, svo kemur einhver "X man" og leiðréttir þig. Það væri nú munur að hafa svona forrit, því eflaust aldrei tekst mér td í mínum pistlum að halda fram heilögum sannleika og villulausri ritun.
En öll umræða er góð.
Hehe frussssssssssssss :)
Iss ekki einhver x-man, heldur The X sem er haldið óstjórnlegri leiðréttingarþörf og hefur engan hemil á skoðunum sínum.
Hjalli veit hver ég er og er bara klökkur yfir því að einhver skuli nenna að lesa bloggið hans og kommenta ;)
Tek alveg að mér að kommenta og leiðrétta, hafa skoðanir og jafnvel hnakkrífast á öðrum síðum ef þess er óskað :)
Þetta er ekki hægt,þetta er lögreglumál
Ha? lögreglumál? Hvað meinar forstjórinn með því?
Þú þekkir frasann frá Einari Bárða, það þekkja hann allir ! :)
Nei, ekki allir...ekki ég!
Post a Comment
<< Home