Reynslusaga af pabba
10052006
Gamli maðurinn varð fyrir því að fá heilablóðfall, laugardaginn fyrir páskana. Hann missti máttinn töluvert vinstra megin, og hefur nú skerta stjórn á hreyfingum þeim megin, auk þess sem hann varð þvoglumæltur (ekki á bætandi). Þar fyrir utan sem hann skröltir um á ,,einari”.
Þegar þetta er ritað er hann búinn að vera á spítala (hjartadeildinni á LSH) í þrjár vikur. Nánast allan þann tíma hefur hann verið að bíða eftir plássi í endurhæfingu á Grensás.
Ekki hefur honum líkað vistin á LSH neitt sérstaklega vel....finnst maturinn vondur, þjónustan sömuleiðis. Hann hefur greinilega misreiknað stjörnufjöldann á þjónustustiginu þegar lagðist inn á Lansann. Hefur sem sagt allt á hornum sér og reynir að finna sér allt til foráttu. Hann hefur m.a.s. ekkert róast við það þegar ég segi honum að ég fái sama mat og hann!
Í vikunni tjáði hann sig nokkuð opinskátt um starfsfólkið við mig. Sagði t.a.m. að þessi albanska, tveggja barna móðirin væri ágæt, en þessi frá Sri Lanka (Lönku) væri hins vegar alveg vonlaus, bæði löt og leiðinleg. Henni líkaði víst illa að pabbi bíaði allt út. Hann benti henni þá kurteislega (eins og honum einum lagið þið vitið!) á að það væri einmitt ástæðan fyrir því að hún hefði þarna vinnu yfirleitt! Hrrrmph...alltaf jafn mjúkur kallinn.
Hann hefur margsinnis reynt að strjúka og beitt kænskubrögðum þegar hann hefur vitnað nánast orðrétt í leyfisviðtöl frá læknum og hjúkrunarfólki, sem hann hefur skáldað jafnóðum. Um daginn var hann t.a.m. gripinn fyrir utan Kringluna (landspítalakringluna) í leigubíl, þar sem hann var u.þ.b. að leggja af stað heim á leið. Í gær plataði hann mig upp úr skónum þegar hann sagðist hafa fengið bæjarleyfi, en þegar heim var komið upp í Arahóla harðneitaði hann að snúa til baka. Sagðist bara ekki fara aftur upp á spítala.
,,Jæja góði” sagði ég og hló við fót! Seinna um daginn stormuðum við Friðrik bróðir og reyndum að telja honum hughvarf, en allt kom fyrir ekki. Því lauk með að við skildum hann einan eftir í íbúðinni og sögðum honum að hringja þegar hann væri farinn að veslast upp úr hungri og vosbúð.
Síðan eftir þetta gengu símtölin á víxl upp á hjartadeild, var það aðallega Friðrik sem sá um þann þátt málsins (hann er meiri tuðari en ég!) til að reyna koma kallinum upp á spítala á ný.
Um kvöldið þegar ljóst var að hann ætlaði að snúa til baka upp á spítala vorum við pabbi að ræða saman (oftast eru þetta ekki venjulegir díalógar), þá varð eftirfarandi samtal þegar hann spurði hvort Friðrik kæmi;
,,Nei, hann kemur ekki í kvöld” svaraði ég.
,,Nú hvers vegna ekki?” tuldraði pabbi.
,,Hann er að læra undir próf” svaraði ég.
,,Ha, próf...í hvurju?” spurði sá gamli.
,,Í plöntuhagfræði!” svaraði ég í aulahúmorsskapi.
,,Ha!?” kváði pabbi frekar hugsi og fannst þetta a.m.k. ekkert fyndið.
,,Nei, hann er er að læra undir vélhjólapróf, sem hann ætlar að þreyta á morgun!” leiðrétti ég.
Síðan vorum við þarna dágóða stund í íbúðinni og horfðum á handbolta og röfluðum eitthvað.
Þegar við vorum að búa okkur undir að leggja af stað niður á spítala þá spyr pabbi sisona:
,,Hvað er með þetta plöntuvesen hjá honum Friðrik?”

1 Comments:
Ji og pabbi þinn sem er alltaf ljúfur eins og lamb og í sólskinsskapi *hissa*
Plöntuvesen á Frikka ROFL - kast hehehe
Vélhjól hvað? Grái fiðringurinn, leðurgalli og Snigill? Detti mér nú allar dauðar og allt það....
Og frúin í hliðarvagni?
Post a Comment
<< Home