Friday, October 06, 2006

Misskipting eða bara öfund?

Sagt er að dyggð velgengninnar sé hófsemi og dyggð mótlætisins sé styrkur. Þessi vísu orð koma óneitanlega upp í hugann þegar ég heyrði í fréttunum í gær, þar sem haft var eftir upplýsingum frá Ríkisskattstjóra, að 1% (eitt prósent) af fjölskyldum í landinu hefði 60% af fjármagnstekjunum.
Auðvitað er það bara gott mál, að fólk er að gera það gott. Ekkert við því að segja. Maður á frekar að samgleðjast þeim sem það gera heldur en að vera minnast á þetta. Ég geri það. Það er ekki við þá að sakast sem kunna að ávaxta sitt pund.
Hins vegar (Reykásinn á fullu!) eru það stjórnvöld sem setja reglurnar. Þau hafa ákveðið að hafa skatta á fjármagnstekjur 10%, en skatt á almennar launatekjur rúmlega 37%. Þá kemur þessi klassíska spurning; af hverju er verið að mismuna eftir uppruna teknanna? Af hverju er hærri skattur á tekjur sem þarf að vinna með höndunum, og sem stundum þarf jafnvel að púla og svitna til að afla þeirra, á meðan fjármagnstekjur bara lulla þarna án þess að vottur af svita komi þar nálægt?
Hvaðan koma hugleiðingarnar að framan þessu við? Jú, þeir sem ráða (í hagsmunagæslunni) geta auðveldlega lagað þennan mismun með því að jafna byrðina. En hinir sem fá minna en þeir eiga skilið (?!)láta sér nægja að nöldra og styrkja mótlætið á meðan.

3 Comments:

Blogger Monika said...

já með þessu framhaldi, færist auðurinn á fáar hendur,Það er lögmál ! Hafa bara 20% skatt fyrir alla, það ætti að duga fyrir þjóðfélagið og allir lifa í sátt og samlyndi. :)

7:42 AM  
Anonymous Anonymous said...

Nja...ég er mest fylgjandi eftir-efnum-og-ástæðum-reglunni!
En ég vil samt að allir borgi einhvern skatt, sama hversu lág laun þeir hafa. Allir eiga að geta barið sér á brjóst og sagt: ,,ég vil fá þjónustu fyrir skattana sem ég borga!"

hrb.

8:28 AM  
Anonymous Anonymous said...

Áður en fjármagnstekjuskatturinn var tekinn upp voru vaxtatekjur SKATTFRJÁLSAR!

Skattlagning vaxtatekna hefur þau áhrif að skattbyrði einstaklinga sem hafa einhverjar vaxtatekjur hefur þyngst frá því sem áður var. Það ætti því að gleðja þig að þeir sem eru að lifa af vöxtum borga nú skatt af þeim sem þeir gerðu ekki áður.

Skattbyrði þeirra sem hafa tekjur af arði, húsaleigu og söluhagnaði en ekki vaxtatekjur minnkar hins vegar þegar á heildina er litið. Þar var farið úr tekjskattsprósentu niður í 10%. Þetta er svona þær helstu fjármagnstekjur sem meðaljóninn hefur.

Þannig greiða tekjuháir einstaklingar mun hærri skatt en hinir tekjulægri og af því leiðir að skattlagning fjármagnstekna er tekjujafnandi þegar á allt er litið.

Breytingin var til batnaðar.

Conclusion: Nöldur!

11:47 PM  

Post a Comment

<< Home