Friday, November 10, 2006

Baráttan um þingsætin!

Prófkjör, forval og uppraðanir á lista stjórnmálaflokkanna vegna komandi alþingiskosninga vorið 2007 stendur nú sem hæst. Þótt mikið hafi verið auglýst áður, held ég að aldrei hafi jafn hraustlega verið 'tekið á því' og nú. Allar heilsíðuauglýsingarnar í blöðum, auglýsingar í sjónvarpi og á netinu, á flettiskiltum og ég veit ekki hvað. Gæði auglýsinganna eru líka alltaf að verða betri, jafnframt því sem frambjóðendurnir eru að verða 'huggulegri' ef svo má segja eftir allt snurfusið, meiköppið og fótósjoppið. Síðan hefur stíllinn og framsetningin líka breyst, t.d. eru margir frambjóðendur að fá stuðning frá þekktu fólki, sem það fær til að vera með sér á mynd, auk þess aðrar varíasjónir. Það er varla maður sér fyrir hvað þessir frambjóðendur standa, sem virðist orðið hálfgert aukaatriði í dag.
Í gær þegar ég var að fletta Mogganum þá staðnæmdist ég við eina auglýsinguna og velti fyrir mér; ,,hei, flottur jakki...og skyrta...", hélt að þetta væri auglýsing frá Dressmann eða e-m.
Nei, aldeilis ekki! Þetta var Mörður Árnason að auglýsa sjálfan sig!

Wednesday, November 01, 2006

Sömu laun fyrir sömu vinnu?

Umræðan um þessi mál, sbr. yfirskrift þessa pistils, hefur tekið á sig nýja mynd eftir að fótboltalandsliðskonur komust að (hafa líklega alltaf vitað) því að þær fá miklu minna fyrir að spila fyrir sína þjóð en karlarnir fá. Í framhaldinu hafa verið skrifaðir langhundar í blöð og á netið, gerð sjónvarpsinnslög, viðtöl og fleira um þetta. Sumir skilja ekki neitt í þessu hróplega óréttlæti.
OMG...ma ma maður áttar sig ekkert á svona...! Í útópíunni væri það ekki nema sanngjarnt að þessu væri jafnara skipt, en þannig er það bara ekki. Skemmtanagildið spilar þarna stóra rullu og þar með áhorfendafjöldinn á leikjunum. Karlarnir eru að trekkja áhorfendur í þúsundavís, en hjá konunum mæta kannski bara örfáir.
Ef þessi jöfnuður ætti að haldast, ætti ég þá ekki að fara fram á sömu laun og Hreiðar Már hjá KB-banka, af því að ég vinn skrifstofuvinnu eins og hann. Og ætti þá ekki Kristbjörg Kjeld að taka kverkatak á Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra og heimta sömu laun og Tom Cruise, þau eru jú bæði leikarar.
Neibb, ekki er því að heilsa. Ég verð a.m.k. að halda áfram að bora í nefið, góna opinmynntur út í loftið og láta mig dreyma um betri kjör.
Hins vegar má alltaf deila um hversu mikill munurinn á að vera, einnig er erfitt að bera saman gæði osfrv.
Já, en stundum er þetta bara svona.