Friday, March 02, 2007

Horft yfir sviðið...

Vá, þvílík gylliboð í gangi núna kortéri fyrir kosningar. Ma ma mar áttar sig ekkert á þeim öllum.
Stjórnarflokkarnir eru þegar búnir að lofa rækilega upp í ermarnar á sér...og jafnvel upp í ermarnar á hinum flokkunum líka, sem væntanlega fá umboðið eftir kosningar ef fram fer sem horfir. Þrátt fyrir öll kosningaloforðin ættu stjórnarandstöðuflokkarnir að fá sjénsinn næstu fjögur árin.
Þeir...andsk....hafi það ættu ekki verið verri en þessi stjórn sem nú er að syngja sitt síðasta.
Annars er það sem einkennir kosningabaráttuna nú, er hversu mikill taugatitringur er á öllu. Ekki má koma upp eitthvert mál, þá þurfa allir helst að fordæma það án þess að skoða málið ofan í kjölinn. Dæmi; stóra klámmálið í Bændahöllinni, Breiðavíkurmálið osfrv. Síðan eru þeir sem ekki eru við kjötkatlana þessa stundina að bjóða upp á ýmislegt, eins og frítt í Hvalfjarðargöngin.
Bíð bara eftir að fá 'út að borða á Argentínu' frá einhverjum stjórnmálaflokknum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home